09.06.2017 21:09

Fjórðungsmót Vesturlands

Fjórðungsmót Vesturlands verður haldið í Borgarnesi 28. júní til 2. júní 2017. Í gæðingakeppni eiga keppnisrétt félagar í hestamannafélögum á Vesturlandi, á Vestfjörðum, í Húnavatnssýslum og í Skagafirði.

Á mótinu verður einnig keppt í þessum greinum og er þar um opna keppni að ræða þ.e. allir geta tekið þar þátt:

  1. Tölt opinn flokkur

  2. Tölt 17 ára og yngri

  3. 100 metra fljótandi skeið

  4. 150 metra skeið

  5. 250 metra skeið

  • Skráningargjald í tölt er 7.000 kr. á hvern hest en 3.500 kr. á hvern hest í skeiðgreinum

  • Skráning í þessar greinar hefst sunnudaginn 11. júní og lýkur á miðnætti sunnudaginn 18. júní og fer hún fram í gegnum SportFeng

  • SportFengsnúmer mótsins er IS2017LM0132

  • Skráningargjöld skal greiða á reikning:
          kt. 450405-2050
          banki: 0326-26-002265
          kvittun fyrir greiðslu skráningargjalda skal send á netfangið thoing@centrum.is.
          Mjög áríðandi að kvittun sé send á þetta netfang.
          Í lok skráningarferlisins koma fram upplýsingar um greiðlsu skráningargjalda.

Peningaverðlaun verða fyrir fyrsta sæti í tölti opnum flokki og 100 m fljótandi skeiði.




Tenglar

Flettingar í dag: 133
Gestir í dag: 15
Flettingar í gær: 209
Gestir í gær: 37
Samtals flettingar: 151547
Samtals gestir: 24930
Tölur uppfærðar: 19.4.2024 06:54:58