19.06.2019 16:11
Mót sumarsins
Firmakeppni Hestamannafélagsins Kóps verður haldin á Sólvöllum í Landbroti föstudagskvöldið 26.júlí nk. kl. 19:00. Keppt verður í opnum flokki (minna og meira vanir) og unghrossaflokki.
Hestaþing Hestamannafélagsins Kóps verður haldið 27.júlí nk. á Sólvöllum í Landbroti. Mótið er opið í gæðingaflokkum, tölti og kappreiðum.
Mótin verða nánar auglýst síðar. Takið dagana frá!
Stjórn og mótanefnd Kóps