Færslur: 2018 Nóvember

14.11.2018 21:37

Frumtamningarnámskeið

Frumtamninganámskeið verður haldið á Syðri-Fljótum helgina 30.nóv-2.des ef næg þátttaka næst.

Kennarar verða Hlynur Guðmundsson og Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir reiðkennarar frá Háskólanum á Hólum.

Stefnt er að því að vera með sýnikennslu á föstudagskvöldinu og svo kæmu þátttakendur með sín eigin tryppi á laugardeginum og sunnudeginum. Tryppin þurfa að vera lítillega bandvön.

Námskeiðsgjald fyrir alla helgina er 20.000 kr. 

Nánari upplýsingar og tímasetningar verða auglýstar þegar nær dregur. Þeir sem hafa áhuga á því að skrá sig eru beðnir um að hafa samband við Öddu í síma 866-5165 eða í netfangið adda159@gmail.com sem fyrst, svo við vitum hvort þátttaka verður næg til þess að hægt sé að halda námskeiðið.

Stjórn Hmf. Kóps.

08.11.2018 23:36

Folaldasýningu frestað

Vegna óviðráðanlegra aðstæðna hefur verið tekin sú ákvörðun að fresta folalda- og tryppasýningu Hestamannafélagsins Kóps, sem halda átti laugardaginn 10.nóvember nk. um óákveðinn tíma. Nánari dagsetning verður auglýst síðar á heimasíðu og á facebooksíðu Hestamannafélagsins Kóps. Stjórn Hmf.Kóps

  • 1

Tenglar

Flettingar í dag: 25
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 241
Gestir í gær: 20
Samtals flettingar: 147446
Samtals gestir: 23752
Tölur uppfærðar: 29.3.2024 02:39:05