10.02.2015 08:51
Aðalfundur Hestamannafélagsins Kóps
Aðalfundur Hestamannafélagsins Kóps
verður haldinn föstudaginn 20. febrúar n.k. kl. 20:30 á Hótel Klaustri.
ATHUGIÐ BREYTTA DAGSETNINGU.
Dagskrá fundarins samkvæmt lögum félagsins.
Kaffiveitingar.
Nýir félagar velkomnir.
Nú skorum við á ykkur félagsmenn góðir að mæta á fundinn. Því fleiri sem mæta, því meiri, líflegri og málefnalegri umræður og ákvarðanatökur verða þá á fundinum. Og að við tölum nú ekki um, afraksturinn af þeirri umræðu sem mun skila sér í aukinni og betri starfsemi félagsins.
Það er markmiðið. Er ekki svo?
Stjórn Hmf. Kóps.