Færslur: 2024 Mars

23.03.2024 19:44

Páskabingó

Páskabingó!

Páskabingó verður haldið í félagsheimilinu á Klaustri laugardaginn fyrir páska, þann 30. mars nk. kl. 14:00.
Veglegir vinningar í boði!
Spjaldið kostar 1000 kr, enginn posi verður á staðnum.
Allir eru velkomnir. Hlökkum til að sjá ykkur!

Fjáröflunarnefnd Kóps

22.03.2024 11:09

Í kvöld verður fyrirlestur sem Einar frá fóðurblöndunni og Tanja Rún dýralæknir munu halda.

 

Fyrirlestur um fóðrun hrossa, hvernig meltingarfærin eru hönnuð og hvað þarf að hafa í huga þegar hross eru fóðruð, þá sérstaklega með tilliti til hrossa sem eru í þjálfun og haldið á húsi en líka um stóðhross. É

Einnig um stoðkerfi hestsins og hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að uppbyggingu reiðhestsins/keppnishests/kynbótahross með það að markmiði að lágmarka líkur á meiðslum

 

Mæting er í fundaraðstöðu Skaftárhrepps og hefst þetta um 19:30 

 

Hlökkum til að sjá sem flesta

fræðslunefnd :)

09.03.2024 14:16

Járninganámskeið

Góðan og blessaðan.

Í dag er járningarnámskeið hjá okkur á Fljótum og kom hann Gummi frá Baldvin og Þorvald með heilan helling af járningardóti og fleira ef fólk vill koma á laugardagsrúnt til okkar og versla vörur ??

Námskeiðið verður í dag til 19:00/20:00 og svo aftur á morgung til sikra 19:00

Endilega komið og kíkjið á okkur ??

  • 1

Tenglar

Flettingar í dag: 144
Gestir í dag: 30
Flettingar í gær: 209
Gestir í gær: 55
Samtals flettingar: 153021
Samtals gestir: 25249
Tölur uppfærðar: 27.4.2024 13:00:28