Færslur: 2014 Ágúst
07.08.2014 19:24
Dagskrá hestaferðar Kóps
Jæja kæru félagar,
Þá fer að bresta á hestaferð og er hugmynd að dagskrá eftirfarandi:
Á morgun, föstudag, verður riðið í kringum Hjörleifshöfða. Lagt verður af stað kl. 17.
Á laugardagsmorgun verður farið frá Heiði og riðið niður í Kerlingadal (bakdyramegin).
Lagt verður af stað kl 11 á laugardagsmorgun.
Á laugardagskvöldið verður kjötsúpa á boðstólum fyrir þreytta ferðalanga.
Gist verður á Eyrarlandi. Það þarf að taka með sér dýnur fyrir þá sem ætla að gista.
Kv. ferðanefnd Kóps
- 1