23.06.2012 21:28
3 knapar komust á Landsmót
Um síðust helgi voru Kópsmenn og konur í úrtöku fyrir landsmót. Úrtakan var haldin í Pétursey um leið og Sindri hélt sitt félagsmót og úrtöku.
3 knapar fengu rétt til að keppa á Landsmóti:
Svanhildur Guðbrandsdóttir í barnaflokki á Stormi frá Egilsstaðakoti ,
Kristín Lárusdóttir í B-flokki á Þokka frá Efstu Grund og
Guðmundur Jónsson í A-flokki á Vestra frá Hraunbæ.
Kópsmenn fengu einnig að taka þátt í úrslitum.
Svanhildur vann barnaflokkinn með glæsibrag og í töltinu fékk Kristín plúsa í bæði forkeppni og úrslitum fyrir prúðmannlega reiðmennsku. Enginn annar keppandi fékk plús.
Heildarúrslit mótsins má sjá á Heimasíðu Sindra.