12.06.2015 08:17

Firmakeppni Hestamannafélagsins Kóps

Firmakeppni Hestamannafélagsins Kóps verður haldin að Sólvöllum í Landbroti miðvikudagskvöldið 17. júní n.k. kl. 20.00. Keppt verður í barna-, unglinga-, opnum- og unghrossaflokki auk þrautabrautar. Æskilegt er að skráningar berist til Öddu á Herjólfsstöðum á netfangið adda159@gmail.com eða í síma 866 5165 fyrir kl. 20:00 á þriðjudag 16. júní n.k. en við lokum þó ekki fyrir skráningar á staðnum. Barnaflokkur: Frjálst 2-3 hringir Unglingaflokkur: Þrír hringir. Sýna að minnsta kosti 2 gangtegundir og eina ferð á beinu brautinni Opinn flokkur: Einn hringur hægt tölt og einn hringur tölt með hraðabreytingum. Hægja niður og snúa við. Einn hringur brokk og einn hringur yfirferð tölt eða brokk. Ein ferð á beinu brautinni, frjálst Unghrossaflokkur: Frjálst 2-3 hringir Hittumst hress og í keppnisstuði. Firmakeppnisnefnd Hmf. Kóps.

Tenglar

Flettingar í dag: 231
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 456
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 420711
Samtals gestir: 54533
Tölur uppfærðar: 24.4.2026 15:56:09