Færslur: 2026 Febrúar

27.02.2026 08:09

LOGO

Kæru félagsmenn

Á aðalfundinum í gær var samþykkt að uppfæra félagsmerki hestamannafélagsins Kóps og nota það merki sem Rúnar Þór Guðbrandsson lét hanna fyrir okkur. Rúnar ætlar að styrkja okkur um allan kostnað við hönnun þessa merkis og viljum við því færa honum innilegar þakkir fyrir.

20.02.2026 16:16

Nýtt LOGO

Kæru félagsmenn

Á síðasta aðalfundi var samþykkt að uppfæra lógó Hestamannafélagsins Kóps.

Fyrir síðasta aðalfund var búið að hafa samband við Gunnhildi Myndlist/ART sem rissaði upp hugmynd af uppfærðu lógói. Stjórnin bar lógóið undir félagsmenn hérna á Facebook hópi félagsins. Undirtektir voru misjafnar og var tillagan felld á aðalfundinum. Rúnar Þór Guðbrandsson bauðst þá til þess að fara í málið fyrir félagið. Það var samþykkt að láta hann koma með tillögu af nýju lógói.

Hérna er útgáfan af lógóinu frá Rúnari Þór. Í ljósi þess sem að ekki allir félagsmenn mæta á aðalfund þá langar okkur til þess að setja þetta hérna inn og fá að heyra ykkar álit/athugasemdir áður en það verður tekið fyrir á aðalfundinum í næstu viku?

Stjórnin

 

Gæti verið mynd af texti

  • 1

Tenglar

Flettingar í dag: 842
Gestir í dag: 14
Flettingar í gær: 1595
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 403219
Samtals gestir: 54026
Tölur uppfærðar: 17.3.2026 11:01:24