05.07.2017 21:12
Bein útsending frá Íslandsmótinu
Við viljum benda ykkur á beina útsendingu frá Íslandsmóti fullorðinna á Gaddstaðaflötum 6. - 9. júlí 2017 á www.oz.com/lh
Einn keppnisdagur á 980 kr.
Aðgangur alla fjóra keppnisdagana og til 31. júlí á aðeins 2850 kr.
Allir helstu gæðingar landsins samankomnir í harðri keppni. Nokkrir knapar berjast um síðustu landsliðssætin en liðið verður tilkynnt eftir helgi.
Með þessu móti getið þið fylgst vel með heima og á ferðinni með oz appinu.
23.06.2017 12:56
Fjórðungsmóti 2017 streymt í gegnum LH-TV
09.06.2017 21:09
Fjórðungsmót Vesturlands
Á mótinu verður einnig keppt í þessum greinum og er þar um opna keppni að ræða þ.e. allir geta tekið þar þátt:
- Tölt opinn flokkur
- Tölt 17 ára og yngri
- 100 metra fljótandi skeið
- 150 metra skeið
- 250 metra skeið
- Skráningargjald í tölt er 7.000 kr. á hvern hest en 3.500 kr. á hvern hest í skeiðgreinum
- Skráning í þessar greinar hefst sunnudaginn 11. júní og lýkur á miðnætti sunnudaginn 18. júní og fer hún fram í gegnum SportFeng
- SportFengsnúmer mótsins er IS2017LM0132
- Skráningargjöld skal greiða á reikning:
banki: 0326-26-002265
kvittun fyrir greiðslu skráningargjalda skal send á netfangið thoing@centrum.is.
Mjög áríðandi að kvittun sé send á þetta netfang.
Í lok skráningarferlisins koma fram upplýsingar um greiðlsu skráningargjalda.
Peningaverðlaun verða fyrir fyrsta sæti í tölti opnum flokki og 100 m fljótandi skeiði.
05.06.2017 20:53
Reiðnámskeið hjá hestamannafélaginu Kópi
Reiðkennari verður Arnhildur Helgadóttir menntaður tamningamaður og reiðkennari frá Háskólanum á Hólum. Reiðnámskeiðið er fyrir alla frá 6 ára aldri, gert er ráð fyrir hópkennslu og einstaklingsmiðaðri kennslu fyrir fullorðna og lengra komna.
Þátttökugjald fyrir krakka: 5.000 kr., fyrir Kópsfélaga: 10.000 kr. og aðra: 15.000 kr.
Æskilegt er að þátttakendur komi með taminn hest og reiðtygi. Nánari upplýsingar og skráning er hjá Arnhildi í síma 866-1382 eða á netfangið arnhildurhe@gmail.com fyrir 11. júní.
Hlökkum til að sjá sem flesta vana sem óvana, allir velkomnir á námskeið!
Hestamannafélagið Kópur
31.05.2017 12:31
Kæri hestamaður
Kæri hestamaður,
Félag skógareigenda á Suðurlandi kannar nú hagkvæmni þess að koma upp úrvinnslu skógarafurða úr sunnlenskum skógum og meðal þess sem félagið skoðar að framleiða er undirburður undir húsdýr.
Mikilvægt er í því samhengi að hafa góðar upplýsingar um markaðinn, hvort eftirspurn sé til staðar, hvaða vörur markaðurinn vilji kaupa og hve stór hann sé. Meðfylgjandi er linkur inn á skoðanakönnun sem mun hjálpa okkur við að ná utan um þessar upplýsingar.
Við biðlum því til þín með að gefa þér örlítinn tíma til að fara inn á könnunina og svara þeim spurningum sem þar eru. Könnunin er algjörlega nafnlaus og órekjanleg, telur einungis 8 spurningar og er fljótsvarað.
Til að svara könnuninni smelliru á linkinn hér fyrir aftan:
https://surveyplanet.com/
Með fyrirfram þakklæti og kveðju,
Félag skógareigenda á Suðurlandi
17.05.2017 11:09
Hestaferð Kóps 2017
Hestaferð Kóps verður farin 18-20 ágúst og er stefnan tekin út í Skaftártungu. Ferðanefnd lofar góðu veðri, enn betri félagsskap og ógleymanlegri skemmtun.
Nánari ferðatilhögun verður auglýst síðar.
"Nefndin"
10.04.2017 12:20
Páskabingó Hestamannafélagsins Kóps
Páskabingó
Hestamannafélagsins Kóps
verður haldið í Félagsheimilinu Kirkjuhvoli laugardaginn fyrir páska,
þann 15. apríl nk. og hefst kl.
14:00.
Góðir vinningar,t.d. páskaegg!! og
margt,margt fleira. Spjaldið kostar 750 kr.
Hluti ágóðans rennur til styrktar
góðu málefni.
Ath. ekki
posi á staðnum.
Allir velkomnir.
Fjáröflunarnefnd Hestamannafélagsins
Kóps.
23.03.2017 09:10
Hestamannafélagið Kópur auglýsir
Hestamannafélagið
Kópur auglýsir.
Fyrirlestur um líkamsbeitingu
knapans með Heiðrúnu Halldórsdóttur pílates dressage instructur, verður haldin
á Kirkjubæjarstofu laugardagskvöldið
25.mars næstkomandi kl 20:00.
Heiðrún er sérhæfður kennari
í líkamsbeitingu knapans til að ná betri árangri í reiðmennsku og að hafa áhrif
á betri líkamsbeitingu hestsins.
Allir hjartanlega velkomnir.
Hestamannfélagið
Kópur.
09.03.2017 08:29
FEIF YOUTH CAMP 2017
FEIF Youth Camp sumarbúðirnar verða haldnar dagana 11. - 18. júlí 2017 í St-Truiden í Belgíu. Þetta eru sumarbúðir fyrir hestakrakka á aldrinum 14-17 ára á árinu og markmið þeirra er að kynna krakka frá aðildarlöndum FEIF fyrir (hesta)menningu annara þjóða og að hitta ungt fólk með sama áhugamál.
Þema FEIF Youth Camp í ár er "hestur og vagn".
Belgíska Íslandshestasambandið er það minnsta innan FEIF og það eru sjálfboðaliðar í æskulýðsstarfinu þar sem skipuleggja viðburðinn. Það sem verður meðal annars á dagskrá:
- Heimsókn á bú þar sem ræktaðir eru Brabant hestar
- Sýnikennsla/kynning á vinnu með dráttarhesta
- Sýnikennsla/kennsla á jafnvægi knapa og ásetu (centered riding)
- Fræðsla um tannheilsu hesta
- Vinna með hest í tvítaum
- Sögufræg borg heimsótt
- Skemmtigarður heimsóttur - Bobbejaanland
- Ferð í hestvagni
- Og margt fleira....!
Umsóknarfrestur um að fara út fyrir Íslands hönd er til 3. apríl 2017 og skulu umsóknirnar berast á netfangið hilda@lhhestar.is fyrir þann tíma.
Umsóknareyðublað er að finna á vef LH, www.lhhestar.is undir "Æskan". Þar er að finna bæði pdf og Excel skrá. Einnig hægt að nálgast umsóknina með því að smella hér.
Kostnaður við búðirnar er ?680 (ca. 78.000 í dag), en inní því er fæði, uppihald og allar ferðir og afþreying í Belgíu. Flug út til Brussel, vasapeningur og annað er ekki innifalið.
Skrifstofa LH veitir allar nánari upplýsingar í síma 514 4030 eða í gegnum netfangið hilda@lhhestar.is.
Frétt á heimasíðu Landssambands Hestamannafélaga:
http://www.lhhestar.is/is/moya/news/feif-youth-camp-2017
02.03.2017 14:59
Aðalfundur Hestamannafélagsins Kóps ath. ný dagsetning og fundarstaður.
Aðalfundur Hestamannafélagsins Kóps
ath. ný dagsetning og fundarstaður.
verður haldinn á Kirkjubæjarstofu mánudaginn 6.mars n.k. kl. 20:30
Venjuleg
aðalfundarstörf.
Lagabreytingar.
Önnur
mál.
Kaffiveitingar
í boði félagsins.
Hvetjum félagsmenn til að fjölmenna á
fundinn og nýir félagar velkomnir.
Stjórnin.
23.02.2017 21:11
Aðalfundi frestað!
Vegna slæmrar veðurspár og annarra óviðráðanlegra aðstæðna hefur verið tekin sú ákvörðun að fresta aðalfundi Hestamannafélagsins Kóps, sem halda átti föstudagskvöldið 24.febrúar, um óákveðinn tíma. Nánari dagsetning verður auglýst síðar á heimasíðu og á facebook-síðu Hestamannafélagsins Kóps.
Stjórn Hmf.Kóps
08.02.2017 13:21
Aðalfundur Hestamannafélagsins Kóps
23.12.2016 09:55
Jólakveðja
Sendum félagsmönnum okkar og fjölskyldum þeirra, svo og öllum velunnurum félagsins,
óskir um gleðileg jól og farsæld á komandi ári
með þökk fyrir stuðning og samstarf á árinu sem er að líða.
Bestu kveðjur.
Hmf. Kópur
21.11.2016 09:54
Úrslit folalda og trippasýningar sem haldin var 12.nóv. s.l.
Folöld:
Hryssur:
1.Gyðja brún, f. Prestsbakka
F: Hrannar f. Flugumýri M: Gleði
f. Prestsbakka. Eig: Ólafur Oddson og
Jón Jónsson.
2. Hlökk rauðstj/glófext, f.
Jórvík 1
F: Sómi f. Reykjavík M: Þoka f. Kanastöðum. Eig: Ásgerður Gróa
Hrafnsdóttir.
3. Fjóla ljósrauð, f.
Geirlandi
F: Ómur f. Kvistum M: Eldglóð f. Álfhólum. Eig: Gísli Kjartansson/
Geirland ehf.
Hestar:
1.Eðall bleikálóttur, f.
Syðri-Fljótum
F: Þytur f. Neðra-Seli M: Elka
f. Króki. Eig: Kristín Lárusd. Og Guðbrandur Magnússon.
2. Ránar jarpur f. Jórvík 1
F: Sómi f. Reykjavík M: Rán f. Reykjavík Eig: Ásgerður Gróa
Hrafnsdóttir.
3. NN. Rauðstjörnóttur f. Jórvík 1
F: Vákur f. Vatnsenda M: Drótt
f. Reykjavík. Eig: Leó Geir Arnarson.
Trippi:
Hryssur:
1.Stjörnuglóð rauðstjörnótt,
f. Geirlandi
F: Konsert f. Korpu M: Eldglóð f. Álfhólum Eig: Sigurlaugur G. Gíslason.
2.Embla brún, f.
Syðri-Fljótum
F: Konsert f. Korpu, M: Elka f. Króki
Eig: Kristín Lárusdóttir og Guðbrandur Magnússon.
3.Ugla jörp, f. Geirlandi
F: Aðall f. Nýjabæ M: Snerra f. Hala Eig: Gísli Kjartansson.
Hestar:
1.Straumur brúnn, f.
Laugardælum
F: Sær f. Bakkakoti M: Stroka f. Laugardælum. Eig: Kristín Lárusdóttir
og Guðbrandur Magnússon.
Dómarar voru Gísli Guðjónsson og Kristinn Guðnason. Við færum þeim bestu þakkir
fyrir þeirra störf.
Áhorfendur fengu að velja með kosningu, eigulegust gripina að þeirra
mati , og voru það Eðall f. Syðri-Fljótum og Straumur f. Laugardælum.
Að lokum,bestu þakkir til allra þátttakenda og annara gesta sem komu á
sýninguna og gerðu daginn að skemmtilegum viðburði hjá félaginu. Gaman væri að
fá fleiri til þátttöku í trippaflokknum. Þar komu aðeins þessi fjögur trippi.
Sjáumst að ári.
Stjórn Kóps