31.10.2016 08:23
Árleg folalda og trippasýning
verður
haldin á Syðri - Fljótum laugardaginn
12. nóv. n.k og hefst kl. 13:00.
Keppt
verður í folaldaflokki (hestar og hryssur)
og
trippaflokki f. 2015 og 2014 (hestar og hryssur).
Skráninargjald kr. 1500 á hvern grip.
Veitt
verða sérstök verðlaun fyrir eigulegasta gripinn að mati áhorfenda, í báðum
flokkum.
Skráningar
þurfa að berast í síma 8693486 eða á netfangið sigmarhelga@simnet.is
í síðasta lagi fyrir kl. 21:00 á
föstudagskvöldið 11. nóvember.
Súpa
og kaffi verða á boðstólum í lokin, gegn vægu gjaldi sem rennur í sjóð
félagsins.
Allir
velkomnir.
Stjórnin.
31.10.2016 08:21
Félagsfundur - ATH breytt staðsetning
Félagsfundur verður haldinn miðvikudaginn 2. nóv. n.k. kl.20:30 í Kirkjubæjarskóla
Dagskrá
fundarins:
Kynning
á drögum að deiliskipulagi fyrir mótssvæðið á Stjórnarsandi.
Nánari
útfærsla samkvæmt áliti félagsmanna og ákvörðun félagsfundar í des. 2015.
Önnur
mál.
Skorum á félagsmenn að mæta og kynna
sér skipulagið og tjá sína skoðun á því.
Stjórnin.
22.08.2016 20:48
Úrslit Hestaþings Kóps 2016
13.08.2016 20:27
Ráslistar fyrir hestaþing Kóps 2016
11.08.2016 13:24
Framlengdur skráningarfrestur!
Framlengdur skráningarfrestur.
Skráningarfrestur á Hestaþing Kóps 14.ágúst n.k. framlengist til miðnættis í kvöld fimmtudag 11.ágúst.
Stjórn og mótanefnd Kóps
03.08.2016 20:05
Vinnukvöld á Sólvöllum.
Vinnukvöld á Sólvöllum.
Vinnufúsir félagsmenn og aðrir
sjálfboðaliðar óskast á mótssvæðið á Sólvöllum fimmtudagskvöldið 11. ágúst n.k. kl. 18:00, og síðar ef einhverjum
hentar það betur. Ætlum að snyrta og undirbúa svæðið fyrir mót. Gott að þeir
sem eiga sláttuorf gætu tekið það með sér. Síðan þetta venjulega hrífu, skóflu,sleggju
ofl.
Hressing að
loknu verki.
Stjórn og
mótanefnd.
03.08.2016 20:02
Hestamannamót Kóps 2016
Hestamannamót Kóps 2016
verður haldið á Sólvöllum í Landbroti
sunnudaginn 14.ágúst n.k. og hefst kl. 10:00 með setningu mótsins.
Mótið er opið í A- og
B-fl. og Tölti.
Dagskrá verður eftirfarandi:
-Forkeppni í B-fl.(opinn öllum), barnafl., unglingafl., ungmennafl. og A-fl. (opinn
öllum).
-Forkeppni í
tölti. (opin öllum).
-Matarhlé.
Úrslit:
-Pollaflokkur
-Úrslit í
B-fl., barnafl., unglingafl., ungmennafl., og A-flokk.
-Úrslit í
tölti.
Kappreiðar:
-150 m. skeið
- 300 m. brokk
- 300 m. stökk
-100 m. skeið.
Skráningargjöld fyrir ungmenna-A-og B-flokk og Tölt eru 3000 kr. á hest og 1500 kr. á hest í
100m. skeið.
Skráningargjöldin greiðast inná reikn.
0317-26-3478 kt: 440479-0579. Kvittun sendist á netfangið palinapalsd@hotmail.com
Skráning telst ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist. Engin
skráningargjöld eru í kappreiðar og barna og ungl.fl.
Skráning er
á heimasíðu Kóps,www. hmfkopur.123.is (Skráningarvefur hægramegin á síðunni) og
henni lýkur kl. 23:59 miðvikudaginn 10.ágúst. Ef vandamál koma upp við
skráningu eða ef eitthvað er óljóst, er hægt að hafa samband við Pálínu
Pálsdóttir í síma 8674919.
Óski
einhverjir eftir að skrá í kappreiðar á staðnum, þarf að hafa á reiðum höndum IS númer hestsins og kennitölu knapa.
Ef
breytingar verða á dagskrá verður það auglýst nánar og einnig birt á heimasíðu
Kóps www.hmfkopur.123.is sem og aðrar
nýjar upplýsingar um mótið ef einhverjar eru.
Vonumst til
að sjá sem flesta í brautinni og brekkunni og að allir geti átt ánægjulegan dag
með okkur.
25.07.2016 08:13
Hestaþing Hestamannafélagsins Kóps
Hestaþing
Hestamannafélagsins Kóps verður haldið sunnudaginn 14.ágúst n.k á Sólvöllum í
Landbroti.
Keppt
verður í eftirfarandi, ef næg þátttaka fæst:
Polla-
barna- unglinga og ungmennaflokk, A og B fl. gæðinga, tölti, 100m.flugskeiði og
kappreiðum.
Mótið
er opið í A og B fl. og tölti.
Nánar
auglýst síðar.
Stjórn
og mótanefnd Kóps.
22.07.2016 13:28
Hestaferð Kóps
Farið verður í hestaferð Kóps dagana 19.-21. ágúst og verður haldið í Meðallandið í þetta sinn. Gist verður í Félagsheimilinu í Efri-Ey.
Ferðin verður nánar auglýst síðar.
Kv. Ferðanefnd Kóps
05.06.2016 15:10
Reiðskóli Hestamannafélagsins Kóps
Reiðskóli Hestamannafélagsins Kóps
verður haldin á Syðri - Fljótum dagana 8,
9, 10. júní (miðvikud. - föstudag) og 13, 14 og 15. júní (mánud. til
miðvikudags), kennt verður á kvöldin.
ATH. Þetta er eitt námskeið
Þátttökugjald er
15.000 kr. og 10.000 kr. fyrir Kópsfélaga
Æskilegt er að þátttakendur
komi með hest og reiðtygi.
Kennari verður
Arnhildur Helgadóttir, nánari upplýsingar og skráning á netfangið arnhildurhe@gmail.com eða í síma 866-1382
fyrir 6. júní.
Reiðnámskeiðið er
fyrir alla frá 6 ára aldri og hlökkum til að sjá sem flesta
Fyrir hönd
hestamannafélagsins,
Arnhildur og Jóna
25.05.2016 18:28
Kópsfélagar A.T.H.
Kópsfélagar A.T.H.
Úrtaka hjá Hmf. Kópi fyrir Landsmót 2016 verður á Sindravelli við Pétursey 11.júní n.k.
Hmf. Kópur á rétt á að senda einn keppanda í hvern flokk og
gildir hæsta einkunn úr forkeppni.
Þeir sem hugsa sér að mæta með hross í úrtöku vinsamlegast
hafið samband við formann Kóps, Kristínu Ásgeirsd. í síma 8693486 eða á
netfangið sigmarhelga@simnet.is ,
til að fá nánari upplýsingar.
Stjórn Kóps.
23.03.2016 14:23
Páskabingó
22.02.2016 18:19
BENNI´S HARMONY HNAKKAKYNNING Á SYÐRI-FLJÓTUM
BENNI´S HARMONY HNAKKAKYNNING Á SYÐRI-FLJÓTUM
Föstudaginn 26.febrúar kl. 16:00 - 18:00 verður Benedikt Líndal með hnakkakynningu.
Hægt að skoða og prófa nýja PORTOS FREEDOM tvískipta hnakkinn frá Benni´s Harmony ásamt fleiri gerðum.
Tilvalið að nota tækifærið ef þú ert í hnakkakaupahugleiðingum og koma með eigin hest og prófa á honum. Það verður líka hægt að fá lánaðan hest á Fljótum til að prófa hnakka.
11.02.2016 10:40
Ískaldar töltdívur
Mikil stemning er fyrir Ísköldum töltdívum og sjáum við fram á frábært mót til styrktar Landsliði Íslands í hestaíþróttum.
Glæsilegir aukavinningar verða í boði ásamt því að sigurvegari opins flokks hlýtur þátttökurétt á Allra sterkustu 26. mars næstkomandi.
Einnig verður glæsilegasta parið valið.
Í ár verða keppnisgreinarnar eftirfarandi:
- T1 (Opinn flokkur)
- T3 (Meira vanar)
- T7 (Minna vanar)
- T3 (Ungmennaflokkur (18-21 árs))
Keppnin hefst með forkeppni, að henni lokinni verður skemmtiatriði í hléi og svo taka úrslitin við.
Úrslitin hefjast kl. 20:00
Skráning er á http://skraning.sportfengur.
Skráningargjaldið er kr. 6.000. Takmarkaður fjöldi skráninga!
Allur ágóði af mótinu fer til styrktar landsliði Íslands í hestaíþróttum sem keppir á Norðurlandamótinu í Biri í Noregi í sumar.
Landsliðsnefnd LH
25.01.2016 11:57
Frumtamninganámskeið
Frumtamninganámskeið verður haldið helgina 6-7.febrúar að Syðri-Fljótum og kennari verður Kristín Lárusdóttir.
Fyrirkomulagið er þannig að þátttakendur mæta með sín eigin trippi. Það vinna tveir og tveir saman og hver tekur sitt trippi en það yrði þá hjálpast að með þau. Þeir yrðu ca. eina klst með þessi tvö trippi bæði laugardag og sunnudag. Síðan yrðu trippin tekin aftur þrjú kvöld í vikunni eftir eða þegar tími hentar. Gott væri ef menn myndu fylgjast með þegar hinir væru að taka sín trippi.
Þetta gera þá fimm skipti á mann og verðið er kr 15.000.
Skráning er hjá Pálínu í síma 867-4919 eða á netfangið palinapalsd@hotmail.com
Um að gera að taka helgina frá og láta þetta tækifæri ekki hjá sér fara.
Stjórn Hmf.Kóps