08.05.2013 10:22
Búið að opna fyrir skráningu á Landsmót UMFÍ 50 +
Búið að opna fyrir skráningu á Landsmót UMFÍ 50 +
Kæru félagar
Eins og þið vitið þá verður Landsmót UMFÍ 50 + haldið helgina 7. – 9. júní í Vík í Mýrdal.
Við hvetjum ykkur til að taka þátt í þessu skemmtilega móti J og senda þessar upplýsingar á sem flesta. Allir geta tekið þátt í mótinu óháð félagsaðild að ungmennafélagi.
Mótið er íþrótta - og heilsuhátíð með fjölbreyttri dagskrá. Auk keppni í hinum ýmsu íþróttagreinum verður boðið upp á ýmsa afþreyingu fyrir keppendur og gesti. Hægt verið að fara í sögugöngu um Vík í Mýrdal, Zumba, sundleikfimi, kvöldvökur og enda kvöldið á dansleik. Því er óhætt að segja að eitthvað verður í boði fyrir alla.
Keppnisgreinar á mótinu eru: Utanvegarhlaup um náttúruperlur Mýrdals, boccia, bridds, golf, frjálsíþróttir, hestaíþróttir, línudans, pútt, ringó, skák, pönnukökubakstur, dráttavélaakstur, kjötsúpugerð, ljósmyndamaraþon,búfjárdómar, sund, sýningar, þríþraut og utanvegar hjólreiðar. Allir á aldrinum 50 ára og eldri geta tekið þátt í keppnisgreinum mótsins. Þátttakendur greiða eitt mótsgjald og öðlast með því þátttökurétt í öllum keppnisgreinum. Mótsgjald er 3500 krónur óháð greinafjölda. Skráning fer fram á heimasíðu mótsins www.landsmotumfi50.is.
Sjáumst á Landsmóti UMFÍ 50 + í Vík í Mýrdal 7. – 9. júní 2013 kát og hress :).
Mínar allra bestu kveðjur,
Sigurður Guðmundsson framkvæmdarstjóri Landsmóts UMFÍ 50 +
Frekari upplýsingar um mótið er að finna inn á www.landsmotumfi50.is eða senda póst á sigurdur@umfi.is sími: 568-2929
![]() |
05.05.2013 17:57
Fréttatilkynning FM2013
Fjórðungsmót hestamanna á Austurlandi verður haldið á félagssvæði Hornfirðings að Fornustekkjum í Nesjum, dagana 20. - 23. júní í sumar.
Hestamannafélaginu Kóp hefur verið boðin þátttaka.
Sjá fréttatilkynningu frá Hornfirðing hér að neðan:
15.04.2013 09:54
Úrslit í Firmakeppni Kóps 2013
Firmakeppni Kóps var haldin í dag á Syðri-Fljótum. Til stóð að halda keppnina á Sólvöllum en ákveðið var að færa keppnina í hús þar sem veðurspá var óhagstæð fyrir daginn. Þátttaka var ágæt og tókst keppnin í alla staði vel. Hross og knapar stóðu sig með prýði og þökkum við þeim fyrir þátttökuna og áhorfendum fyrir komuna.
Eftirtalin fyrirtæki og býli tóku þátt og færum við þeim bestu þakkir fyrir:
Arion banki
Auja og Siggi Heilsugæslunni
Bílaverkstæðið Kirkjubæjarklaustri
Búval ehf.
Dýralæknaþjónusta Suðurlands ( Lars Hansen.)
Efri-Ey 2
Fagurhlíð
Ferðaþjónustan Hunkubökkum
Fósturtalningar Ellu og Heiðu
Gröfuþjónusta Birgis Jónssonar
Heilsuleikskólinn Kæribær
Herjólfsstaðir
Hjúkrunarheimilið Klaustri
Hótel Geirland
Hótel Klaustur
Hótel Laki
Hörgsland 2
Jórvík 1
Kirkjubæjarklaustur 2
Kirkjubæjarstofa
Krónus (Palli og María )
Mýrar
Nonna og Brynjuhús
Prestsbakki
Skaftárhreppur
Systrakaffi
Tamningastöðin Syðri-Fljótum
Tjaldstæðið Kirkjubæ 2
Tjaldstæðið Kleifum
Þykkvibær 1
Þykkvibær 3
Úrslit urðu eftirfarandi:
Barnaflokkur:
1.sæti Svanhildur Guðbrandsdóttir á Eldingu f. Efstu-Grund
Firma: Hótel Klaustur.
2. sæti Sigurður Gísli Sverrisson á Moy Kong f. Mosfellsbæ
Firma: Tjaldsvæðið Kirkjubæ 2
3. sæti Svava Margrét Sigmarsdóttir á Fagra Blakk f. Ytri-Tungu
Firma: Efri-Ey 2
Unghrossaflokkur:
1.sæti Perla frá Hraunbæ. Eig. og knapi Hlynur Guðmundsson.
Firma: Hótel Laki
2.sæti Svarta Perla frá Fornusöndum. Eig. Magnús Geirsson. Knapi Svanhildur Guðbrandsd.
Firma: Tamningastöðin Syðri- Fljótum
3.sæti Askur frá Laugarbóli. Eig. Sævar Kristjánsson. Knapi Guðbrandur Magnússon.
Firma: Fósturtalningar Ellu og Heiðu.
Opinn flokkur:
1.sæti Þokki frá Efstu Grund. Eig. Kristín og Brandur. Knapi Kristín Lárusdóttir.
Firma: Þykkvibær 3
2.sæti Þyrla frá Böðmóðsstöðum 2 Eig. Hulda Karólína Harðardóttir. Knapi Hlynur Guðmundsson.
Firma: Tjaldstæðið Kleifum.
3. sæti Stormur frá Egilsstaðakoti. Eig. Kristín og Brandur. Knapi Svanhildur Guðbrandsdóttir.
Firma: Ferðaþjónustan Hunkubökkum.
4.sæti Blær frá Prestsbakka. Eig. Jón Jónsson og Ólafur Oddsson. Knapi Árni Gunnarsson.
Firma: Hótel Geirland.
5.sæti Kjarkur frá Vík Eig. Kristín og Brandur. Knapi Guðbrandur Magnússon.
Firma: Kirkjubæjarklaustur 2
12.04.2013 19:36
Firmakeppni Hestamannafélagsins Kóps 2013
Firmakeppni Hestamannafélagsins Kóps 2013
Minnum á firmakeppni Hestamannafélagsins Kóps sem haldinn verður á morgun, laugardaginn 13. apríl.
Keppni hefst klukkan 13:30 og keppt verður í eftirfarandi flokkum: Barna-, Unglinga-, Unghrossa- og Opnum flokki.
Firmanefnd hefur ákveðið að keppnin fari fram í
REIÐHÖLLINNI SYÐRI-FLjÓTUM
þar sem völlurinn á Sólvöllum er þakin snjó og veðurspá ekki góð fyrir laugardeginum.
Vinsamlegast látið þetta fréttast sem víðast.
Sjáumst,
Firmanefndin
10.04.2013 19:12
Halló, halló krakkar og foreldrar á félagssvæði Kóps.
Tilkynning frá æskulýðsnefnd.
Ákveðið hefur verið að aflýsa áður auglýstri sætaferð á Hestafjörið á Selfossi sem á að vera á sunnudaginn 14.apríl.
Öllum er samt heimilt að mæta á þessa sýningu, þar sem þetta er ekkert beintengt í gegnum félögin og bendi ég á auglýsingu á heimasíðu Kóps hmfkopur.123.is.
En í staðinn ætlum við að hafa Pizzufjör hér heima.
Það verður haldið á Systrakaffi strax eftir skóla núna á föstudaginn 12. apríl.
Við ætlum að fara í leiki, spurningakeppni,hafa smá fræðslu og éta alveg helling af pizzum. Frítt fyrir þá sem eru í félaginu og eru skuldlausir. Þeir sem ekki eru í félaginu og eiga ekki pabba eða mömmu í félaginu borga 1000 kr.
Og kæru foreldrar, þátttaka barnanna ykkar veltur á því hvort að þið getið sótt þau kl. 16:30 þegar fjörinu lýkur. Við sjáum um að allir sem taka þátt fylgist að á Systrakaffi að loknum skóla.
En til að vita nú hvað við þurfum að panta margar pizzur þarf að skrá sig í síðasta lagi um hádegi á fimmtudaginn 11.apríl hjá Stínu í síma 8693486 eða hjá Mæju í síma 8571973 En allir verða að hafa leyfi frá foreldrum.
Með kveðju
Stína, Mæja og Sissi.
05.04.2013 07:52
Firmakeppni Hestamannafélagsins Kóps 2013
Laugardaginn 13. apríl verður Firmakeppni Hestamannafélagsins Kóps haldin á Sólvöllum.
Keppni hefst kl. 13:30 og keppt verður í eftirfarandi flokkum:
Barna-, unglinga-, unghrossa- og opnum flokki.
Skráningar þurfa að berast í síðasta lagi fimmtudaginn 11. apríl til Sigurðar Hörgslandi II, Fanneyjar Ólafara Kirkjubæjarklaustri II eða Pálínu Mýrum.
Sigurður: horgsland2@simnet.is eða 861 9081
Fanney Ólöf: fanneyolof@gmail.com eða 894 1560
Pálína: palinapalsd@hotmail.com eða 867 4919
Bestu kveðjur,
Firmanefnd
02.04.2013 07:44
Þakkir til styrktaraðila á páskabingói Hmf. Kóps
Páskabingó Kóps var haldið s.l. laugardag. Þar mætti fjöldi fólks og freistaði gæfunnar en hún er eins og vant er mismunandi hliðholl fólki.
Þökkum við öllum kærlega fyrir komuna og þátttökuna.
Fjölmargir styrktu félagið með því að gefa vinninga og færum við þeim bestu þakkir fyrir en það eru eftirtaldir:
Soffía Gunnarsdóttir Jórvík 1
Ásgerður Gróa Hrafnsdóttir Jórvík 1
Fjóla Þorbergsdóttir Klaustri
Systrakaffi ehf.
Icelandair Hótel Klaustur
Mjólkursamsalan ehf.
Hótel Geirland
Hótel Laki
Íþróttamiðstöðin Klaustri
Verslunin Baldvin og Þorvaldur Selfossi
Sælgætisgerðin Góa ehf.
Arion Banki Klaustri
Með kveðju
Fjáröflunarnefnd Kóps.
29.03.2013 20:27
Skýrari vinningaskrá
Skýrari mynd af vinningaskrá í happdrætti Kóps.
1. Folatollur undir Klæng frá Skálakoti.
2. 2 kg. humar í skel.
3. Folatollur undir Storm frá Herríðarhóli.
4. Gjafakort kr. 15.000 þús.
5. Folatollur undir Trausta frá Blesastöðum 1A
6. Folald fætt 2013 frá Jórvík 1 undan Hagen frá Reyðarfirði.
7. Gjafabréf frá Icelandair Hótel Reykjavík Natura.
8. Folatollur undir Glað frá Prestsbakka.
9. Handprjónuð lopapeysa að eigin vali.
10. Folatollur undir Freymóð frá Feti.
11. 2 kg. humar í skel.
12. Folatollur undir Borða frá Fellskoti.
13. Gjafakort kr. 15.000 þús.
14. Folatollur undir Þröst frá Hvammi.
15. Black og Decker juðari frá Húsasmiðjunni.
16. Folatollur undir Óðinn frá Eystra-Fróðholti.
17. Gjafabréf frá Icelandair Hótel Reykjavík Natura.
18. Folatollur undir Sævar frá Ytri-Skógum.
19. Flís hestaábreiða frá Líflandi.
20. Folatollur undir Hruna frá Breiðumörk.
Miðarnir eru til sölu nú þegar hjá Kristínu á Skriðuvöllum 5 og verða síðan boðnir til sölu á ýmsum stöðum.
Stjórnin.
25.03.2013 21:18
Happdrætti hestamannafélagsins Kóps
Nú er komið að sölu á happdrættismiðum fyrir Kóp!
Miða er hægt að panta hjá Kristínu Ásgeirsdóttur í síma 8693486 eða á sigmarhelga@simnet.is.
![]() |
18.03.2013 10:52
Fréttir frá æskulýðsnefnd Kóps
Kæri/kæru félagsm. í Kóp.
Nú ætlum við í æskulýðsnefnd Kóps að leyfa ykkur að heyra hvað við höfum uppá að bjóða fyrir krakka og unglinga í Kóp, á næstunni.
Fyrst er reiðnámskeið sem er 1x í viku í 4 skipti. Fyrsta skipti 22.mars . Já, við vitum að þetta er stuttur fyrirvari en ekki er orðið auðvelt að finna pláss á dagatalinu fyrir afþreyingu þannig að ekki stangist á við annað.
Firmakeppni er 13.apríl þar sem keppt er í barna og unglingaflokk.
Sunnudaginn 14. apríl er fyrirhuguð skemmtiferð fyrir krakkana og foreldra á Hestafjör 2013 sem haldið er í Sleipnishöllinni á Selfossi. Þetta er skemmtun sem félögin á Suðurlandi standa fyrir og krakkar og unglingar sjá um sýningaratriðin. Þetta er frábær skemmtun fyrir alla og við skorum á ykkur að koma með í þessa ferð. Eftir sýningu á að skella sér í pizzupartý á einhvern góðan stað á leiðinni.
Allt þetta verður auglýst nánar síðar nema fyrsti námskeiðsdagurinn hann er auglýstur hér með núna. Þeir sem áhuga hafa á því vinsamlegast skrái sig sem allra fyrst, hjá Kristínu Á. í síma 8693486 eða Mæju í síma 8571973 og þær veita einnig nánari upplýsingar. Námskeiðið verður haldið á Fljótum og kennari verður Kristín Lárusd. Nemendur þurfa að hafa hest til umráða og vera skuldlausir við félagið. Námskeiðsgjaldi verður reynt að halda í lágmarki.
Með von um gott samstarf.
Æskulýðsnefnd Kóps
Stína, Mæja og Sissi.
18.03.2013 10:35
Verðlaunaafhending á efnilegasta og íþróttamanni USVS
Á sambandsþingi U.S.V.S. sem haldið var 16. mars voru veitt verðlaun fyrir efnilegasta íþróttamann og fyrir íþróttamann U.S.V.S.
Tilnefndnir sem efnilegastir voru:
Elín Árnadóttir frá Hmf. Sindra, Guðmundur Elíasson frá Kötlu, Katla Björg Ómarsdóttir frá Ármanni og Svanhildur Guðbrandsdóttir frá Hmf. Kóp.
Svanhildur var útnefnd efnilegasti íþróttamaður U.S.V.S.
Tilnefndir til íþróttamanns ársins voru:
Hlynur Guðmundsson frá Hmf. Sindra, Kristín Lárusdóttir frá Hmf. Kóp og Þorsteinn Björn Einarsson frá Kötlu.
Þorsteinn Björn var útnefndur Íþróttamaður U.S.V.S. 2012.
Myndir af þessu flotta íþróttafólki koma inn fljótlega.
17.03.2013 15:13
FEIF Youth Camp í Noregi 2013
FEIF Youth Camp í Noregi 2013
FEIF Youth Camp sumarbúðirnar verða haldnar dagana 22. – 29. júlí 2013 í vesturhluta Noregs, milli Álasunds og Moldö. Þetta eru sumarbúðir fyrir hestakrakka á aldrinum 13-17 ára á árinu og markmið þeirra er að kynna krakka frá aðildarlöndum FEIF fyrir (hesta)menningu annara þjóða og að hitta ungt fólk með sama áhugamál.
Það er norska Íslandshestasambandið í samstarfi við þjálfunarstöðvarnar Kjersem og SP og hestamannafélagið á staðnum, Vestnes. Gistingin verður til að mynda í Kjersem.
Það sem krakkarnir munu hafa fyrir stafni í Noregi er til dæmis þetta:
- 2 reiðtúrar á íslenskum hestum í hinum stórfenglegu norsku fjöllum
- Fjallganga upp á eitt fallegasta fjall Noregs með leiðsögumanni sem hefur klifið Mount Everest
- Fræðsla um tamningu hesta
- Dagsheimsókn til heimsmeistarans Stians Pedersen
- Farið í viðarkyntan heitan pott
- Skoðunar- og verslunarferð í Ålesund
- Þjálfað fyrir litla keppni
- Geirangursfjörður heimsóttur en hann er sannarlega fallegur staður og er m.a. á heimsminjaskrá UNESCO
- Grillkvöld og margt fleira!
Umsóknarfrestur um að fara út fyrir Íslands hönd er til 5. apríl 2013 og skulu umsóknirnar berast á netfangið hilda@landsmot.is fyrir þann tíma.
Umsóknareyðublað er að finna á vef LH, www.lhhestar.is undir Æskulýðsmál. Einnig hægt að nálgast umsóknina með því að smella hér.
Kostnaður við búðirnar er €550 sem er fæði, uppihald og allar ferðir og afþreying í Noregi. Flug og ferðir til og frá FEIF YC staðnum í Noregi eru ekki innifaldar.
Skrifstofa LH veitir allar nánari upplýsingar í síma 514 4030 eða í gegnum netfangið hilda@landsmot.is.
17.03.2013 15:11
Páskabingó!
Páskabingó í Tunguseli.
Páskabingó Hestamannafélagsins Kóps verður haldið í Tunguseli laugardaginn fyrir páska, þann 30.mars n.k. kl.14:00. Margt góðra vinninga.
Hluti ágóðans rennur til Styrktarsamtaka heilsugæslustöðvarinnar á Kirkjubæjarklaustri.
Spjaldið kostar kr.500 og nú munum við bæta ráð okkar og eiga nóg af spjöldum svo enginn þurfi frá að hverfa eins og gerðist því miður í fyrra.
Fjáröflunarnefnd Hmf. Kóps.
12.03.2013 11:43
Skýrsla Æskulýðsnefndar Kóps 2012
Hér má finna skýrslu Æskulýðsnefndar Kóps 2012:
http://www.lhhestar.is/static/files/aeskulyds_skyrslur/2012/Kopur.pdf