03.08.2018 10:41
Vinnukvöld
Vinnukvöld á Sólvöllum
Fimmtudagskvöldið 9.ágúst er ætlunin að undirbúa og fegra svæðið fyrir mót og væri því gott að fá vinnufúsa félagsmenn á staðinn kl. 19:00 og síðar ef það hentaði einhverjum betur.
Gott að taka með sér þetta hefðbundna, sleggju, hrífu, skóflu og sláttuorf, þeir sem eiga slíka græju.
Hressing í boði félagsins að loknu verki.
Stjórn og mótanefnd Kóps.
27.07.2018 12:00
Firmakeppni og Hestaþing Kóps
Firmakeppni Hestamannafélagsins Kóps verður haldin á Sólvöllum í Landbroti föstudagskvöldið 10.ágúst nk. kl. 19:00. Keppt verður í opnum flokki (minna og meira vanir) og unghrossaflokki.
Skráningar berist á netfangið hmf.kopur@gmail.com en þær þurfa að berast í síðasta lagi miðvikudagskvöldið 8.ágúst nk. Einnig verður hægt að skrá á staðnum.
Að firmakeppni lokinni ætlar Lilja Hrund Harðardóttir að vera með heimboð þar sem boðið verður upp á grill og með því.
Hestaþing Hestamannafélagsins Kóps verður haldið 11.ágúst nk. á Sólvöllum í Landbroti.
Mótið er opið í gæðingaflokkum, tölti og kappreiðum.
Keppt verður í eftirfarandi ef næg þátttaka næst:
Polla-, barna-, unglinga- og ungmennaflokki og A- og B-flokki gæðinga.
Tölti T3 og T7
100 m. flugskeiði, 150 m. skeiði, 300 m. brokki og 300 m. stökki.
Skráningargjöld í ungmennaflokk, A-flokk, B-flokk og tölt er kr. 3000.- og kr. 1500.- í 100 m. skeið.
Engin skráningargjöld eru í kappreiðar, polla-, barna- og unglingaflokk.
Skráningargjöld greiðist inn á reikn: 0317-26-3478 kt: 440479-0579.
Kvittun sendist á netfangið hmf.kopur@gmail.com
Skráning telst ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist.
Skráning er á heimasíðu Kóps (skráningarvefur hægra megin á síðunni) og henni lýkur kl. 23:59 miðvikudagskvöldið 8. ágúst nk.
Ef vandamál koma upp við skráningu er hægt að hafa samband við Pálínu Pálsdóttur í síma 867-4919.
Óski einhver eftir að skrá í kappreiðar á staðnum þarf að hafa á reiðum höndum IS númer hestsins og kennitölu knapa.
Dagskrá og ráslistar verða birt á hérna á heimasíðunni eftir að skráningu lýkur.
Hlökkum til að sjá sem flesta.
Fjáröflunar- og mótanefnd Kóps 2018.
16.06.2018 08:55
Reiðskóli
Reiðskóli Hestamannafélagsins Kóps
Reiðskóli Hestamannafélagsins Kóps verður haldinn dagana 18.-22.júní á Syðri-Fljótum. Kennt verður á kvöldin. Reiðkennarar verða Kristín Lárusdóttir og Svanhildur Guðbrandsdóttir. Reiðnámskeiðið er fyrir alla frá 6 ára aldri hvort sem þeir eru vanir eða óvanir. Þátttökugjald fyrir krakka er kr. 7.000 aðrir kr. 15.000. Þátttakendur þurfa að koma með taminn hest og reiðtygi. Skráning er hjá Pálínu í síma 867-4919 eða á netfangið hmf.kopur@gmail.com en skráningar þurfa að berast í síðasta lagi laugardagskvöldið 16.júní nk. Nánari upplýsingar og tímasetningar verða auglýstar síðar. Hlökkum til að sjá sem flesta (og vonumst til að sjá alla sem voru með okkur í hestaklúbbnum í vetur!)
Fræðslunefnd og stjórn Kóps
26.05.2018 09:57
Úrtaka fyrir landsmót
Úrtaka Kóps fyrir Landsmót verður á Sindravelli við Pétursey 16. júní næstkomandi.
Kópur á rétt á að senda einn keppanda í hvern flokk og gildir hæsta einkunn úr forkeppni, boðið verður upp á tvær umferðir.
Skráning og frekari upplýsingar á netfanginu hmf.kopur@gmail.com eða hjá Pálínu í síma 867-4919.
Skráningarfrestur er til 11. júní. Hlökkum til að sjá sem flesta í úrtöku.
Stjórn Kóps.
20.04.2018 15:06
Sýnikennsla um helgina
Laugardagskvöldið 21.apríl kl. 20:00 ætlar Hlynur Guðmundsson að vera með sýnikennslu á Syðri-Fljótum. Það verður frítt inn og allir eru velkomnir. Hlökkum til að sjá ykkur! Hmf.Kópur
10.04.2018 14:27
Reiðnámskeið
Reiðnámskeið verður haldið á Syðri-Fljótum dagana 21. - 22. apríl nk. ef næg þáttaka næst.
Reiðkennari verður Hlynur Guðmundsson menntaður tamningamaður og reiðkennari frá Háskólanum á Hólum.
Reiðnámskeiðið er fyrir unga sem aldna en gert er ráð fyrir hópkennslu og einkakennslu 2x40 mín. Þátttökugjald er 10.000 kr. Þátttakendur þurfa að koma með taminn hest og reiðtygi.
Hlynur verður einnig með sýnikennslu þessa helgi á Syðri-Fljótum sem verður opin öllum en nánari tímasetningar verða auglýstar síðar.
Nánari upplýsingar og skráning á námskeiðið er hjá Pálínu Pálsdóttur í síma 867-4919 eða á netfangið palinapalsd@hotmail.com fyrir 17. apríl nk. Allir eru velkomnir á námskeiðið.
Hlökkum til að sjá sem flesta!
27.03.2018 10:30
Páskabingó!
Páskabingó verður haldið í félagsheimilinu í Tunguseli laugardaginn fyrir páska, þann 31.mars nk. kl. 14:00.
Góðir vinningar eru í boði t.d. páskaegg og fleira veglegt og flott!
Spjaldið kostar 750 kr, enginn posi verður á staðnum.
Allir velkomnir. Hlökkum til að sjá ykkur!
Fjáröflunarnefnd Kóps
21.03.2018 19:49
Hestamannafélagið Kópur auglýsir!
Stefnt er að því að vera með sætaferð á Stórsýningu
sunnlenskra hestamanna sem haldin verður í Rangárhöllinni þann 29 mars nk.
Húsið opnar kl 19:00 og sýningin hefst kl. 20:00.
Hugmyndin er taka daginn snemma og koma við á einu til
tveimur hrossaræktarbúum fyrr um daginn og fara svo út að borða áður en
sýningin hefst. Forsala miða er hafin og þar af leiðandi þurfum við að vita
hversu margir ætla að fara í síðasta lagi á sunnudagskvöld svo hægt sé að panta miða en miðaverð á sýninguna er 2.900 kr
á mann.
Tímasetningar, staðsetningar og allar aðrar mögulegar
upplýsingar verða veittar þegar nær dregur en hægt er að panta miða hjá Öddu í
síma 866-5165 eða í netfangið adda159@gmail.com sem fyrst.
Stjórn Hmf. Kóps
20.02.2018 10:11
Aðalfundur Hestamannafélagsins Kóps
28.12.2017 14:02
LH ÓSKAR EFTIR UMSÓKNUM Í AFREKSHÓP LH 2018
LH ÓSKAR EFTIR UMSÓKNUM Í AFREKSHÓP LH 2018
Tilgangur verkefnisins er að búa unga knapa undir að takast á við stór verkefni á sviði hestamennskunnar bæði hér heima og á erlendum vettvangi.
Gjaldgengir í hópinn eru knapar á aldrinum 16 til 21. árs á árinu 2018.
Valið er í afrekshóp til eins árs í senn. Í umsókn skulu koma fram allar grunnupplýsingar um umsækjandann, sem og keppnisárangur síðustu tvö keppnisár. Taka þarf sérstaklega fram hvaða mót, sæti og einkunn.
Kostnaður knapa er kr. 80.000 fyrir árið (Hægt að dreifa).
Viðburðir á vegum verkefnisins verða fjórir á árinu og er skyldumæting í þá alla.
Nánari dagskrá mun liggja fyrir í byrjun janúar.
Liðstjóri hópsins verður Arnar Bjarki Sigurðarson
Umsóknarfrestur er til og með 5.janúar 2018 og skulu umsóknir berast á netfangið lh@lhhestar.is
ATH: Þeir sem voru í afrekshóp LH 2017 þurfa að endurnýja sína umsókn til að eiga möguleika á að halda áfram.
Arnar Bjarki veitir nánari upplýsingar á netfanginu sunnuhv@gmail.com
Metnaðarfullt verkefni og einstakt tækifæri fyrir unga knapa til að bæta sig og byggja keppnishestinn upp á markvissan hátt.
Stjórn LH
09.08.2017 13:58
Hestaferð Kóps 2017
Árleg hestaferð Kóps verður 18.-20. ágúst en haldið verður í Skaftártungu.
Lagt verður af stað frá Heiðarseli 18. ágúst klukkan 13:00 og farið að Búlandi.
Á laugardeginum verður tekinn hringur um Skaftártungu undir dyggri leiðsögn heimamanna.
Á sunnudeginum er stefnan sett að Fljótum en þar er formlegri hestaferð lokið en að sjálfsögðu geta þátttakendur lengt ferðina ef vilji er til.
Gist verður í Tunguseli föstudag til sunnudags. Sameiginlegt grill verður á laugardeginum, alvöru veisla að hætti Kóps.
Þátttökugjaldi verður stillt í hóf eins og kostur er.
Láttu ekki þessa einstöku hestaferð fram hjá þér fara en hún mun einkennast af geggjuðu veðri, frábærum félagsskap og skapa ógleymanlegar minningar.
Skráningarfrestur er til 13. ágúst en skráning fer fram hjá Silla 844-4465 eða Fanney 894-1560 - fanneyolof@gmail.com
26.07.2017 11:32
Úrslit Hestaþing Kóps 2017
| IS2017KOP146 - Hestaþing Kóps | |||||
| Mótshaldari: Hestamannafélagið Kópur | |||||
| Dagsetning: 22.07.2017 - 22.07.2017 | |||||
| TÖLT T1 | |||||
| Opinn flokkur - 1. flokkur | |||||
| Forkeppni | |||||
| Sæti | Knapi | Hross | Litur | Aðildarfélag knapa | Einkunn |
| 1 | Kristín Lárusdóttir | Aðgát frá Víðivöllum fremri | Brúnn/milli-einlitt | Kópur | 6,77 |
| 2 | Kristín Ingólfsdóttir | Svalur frá Hofi á Höfðaströnd | Brúnn/milli-einlitt | Sörli | 6 |
| 3 | Kristín Lárusdóttir | Yppta frá Laugardælum | Rauður/milli-stjörnóttgl... | Kópur | 5,73 |
| 4 | Liva Marie Hvarregaard Nielsen | Harka frá Holtsenda 2 | Jarpur/milli-stjörnótt | Hornfirðingur | 5,23 |
| 5 | Guðbrandur Magnússon | Straumur frá Valþjófsstað 2 | Brúnn/milli-einlitt | Kópur | 5,23 |
| 6 | Svanhildur Guðbrandsdóttir | Pittur frá Víðivöllum fremri | Rauður/milli-nösótt | Kópur | 4,43 |
| 7 | Sigurlaugur G. Gíslason | Assa frá Guttormshaga | Brúnn/milli-einlitt | Kópur | 4,07 |
| 8 | Sigurlaugur G. Gíslason | Aska frá Geirlandi | Jarpur/milli-einlitt | Kópur | 0 |
| 9 | Hlynur Guðmundsson | Tromma frá Höfn | Brúnn/milli-einlitt | Hornfirðingur | 0 |
| A úrslit | |||||
| Sæti | Knapi | Hross | Litur | Aðildarfélag knapa | Einkunn |
| 1 | Kristín Lárusdóttir | Aðgát frá Víðivöllum fremri | Brúnn/milli-einlitt | Kópur | 7,11 |
| 2 | Kristín Ingólfsdóttir | Svalur frá Hofi á Höfðaströnd | Brúnn/milli-einlitt | Sörli | 6,5 |
| 3 | Liva Marie Hvarregaard Nielsen | Harka frá Holtsenda 2 | Jarpur/milli-stjörnótt | Hornfirðingur | 6,28 |
| 4 | Guðbrandur Magnússon | Straumur frá Valþjófsstað 2 | Brúnn/milli-einlitt | Kópur | 5,56 |
| 5 | Svanhildur Guðbrandsdóttir | Pittur frá Víðivöllum fremri | Rauður/milli-nösótt | Kópur | 5,11 |
| TÖLT T7 | |||||
| Opinn flokkur - 1. flokkur | |||||
| Forkeppni | |||||
| Sæti | Knapi | Hross | Litur | Aðildarfélag knapa | Einkunn |
| 1 | Svandís Magnúsdóttir | Adolf frá Miðey | Brúnn/milli-einlitt | Sörli | 5,93 |
| 2 | Katharina Remold | Dimmbrá frá Litladal | Jarpur/dökk-einlitt | Hornfirðingur | 5,1 |
| 3 | Friðrik Snær Friðriksson | Þruma frá Hlíðarbergi | Jarpur/milli-skjótt | Hornfirðingur | 5 |
| A úrslit | |||||
| Sæti | Knapi | Hross | Litur | Aðildarfélag knapa | Einkunn |
| 1 | Svandís Magnúsdóttir | Adolf frá Miðey | Brúnn/milli-einlitt | Sörli | 6,17 |
| 2 | Friðrik Snær Friðriksson | Þruma frá Hlíðarbergi | Jarpur/milli-skjótt | Hornfirðingur | 5,25 |
| 3 | Katharina Remold | Dimmbrá frá Litladal | Jarpur/dökk-einlitt | Hornfirðingur | 5,08 |
| SKEIÐ 100M (FLUGSKEIÐ) | |||||
| Sæti | Knapi | Hross | Litur | Aðildarfélag knapa | Tími |
| 1 | Hlynur Guðmundsson | Krafla frá Efstu-Grund | Jarpur/milli-einlitt | Hornfirðingur | 8,03 |
| 2 | Kristín Ingólfsdóttir | Glaðvör frá Hamrahóli | Jarpur/rauð-einlitt | Sörli | 9,2 |
| 3 | Þórdís Gunnarsdóttir | Seiður frá Hlíðarbergi | Jarpur/milli-einlitt | Hornfirðingur | 9,56 |
| 4 | Sigurlaugur G. Gíslason | Heiða frá Austurkoti | Rauður/milli-blesótt | Kópur | 9,7 |
| 5 | Eyjólfur Kristjónsson | Hátíð frá Ási | Móálóttur,mósóttur/milli- | Hornfirðingur | 10,2 |
| 6 | Guðbrandur Magnússon | Elding frá Efstu-Grund | Rauður/milli-einlitt | Kópur | 10,48 |
| 7 | Liva Marie Hvarregaard Nielsen | Sleipnir frá Hlíðarbergi | Rauður/milli-stjörnótt | Hornfirðingur | 11,6 |
| SKEIÐ 150M | |||||
| Sæti | Knapi | Hross | Litur | Aðildarfélag knapa | Tími |
| 1 | Þórdís Gunnarsdóttir | Seiður frá Hlíðarbergi | Jarpur/milli-einlitt | Hornfirðingur | 15,8 |
| 2 | Liva Marie Hvarregaard Nielsen | Sleipnir frá Hlíðarbergi | Rauður/milli-stjörnótt | Hornfirðingur | 15,8 |
| A FLOKKUR | |||||
| Forkeppni | |||||
| Sæti | Hross | Knapi | Litur | Aðildarfélag eiganda | Einkunn |
| 1 | Gefjun frá Lækjarbrekku 2 | Bjarney Jóna Unnsteinsd. | Móálóttur,mósóttur/milli... | Hornfirðingur | 8,25 |
| 2 | Sara frá Lækjarbrekku 2 | Bjarney Jóna Unnsteinsd. | Brúnn/dökk/sv.einlitt | Hornfirðingur | 8,22 |
| 3 | Þruma frá Fornusöndum | Kristín Lárusdóttir | Brúnn/milli-einlitt | Kópur | 8,09 |
| 4 | Glaðvör frá Hamrahóli | Kristín Ingólfsdóttir | Jarpur/rauð-einlitt | Kópur | 8,08 |
| 5 | Elding frá Efstu-Grund | Guðbrandur Magnússon | Rauður/milli-einlitt | Kópur | 7,7 |
| 6 | Hera frá Skriðu | Sigurlaugur G. Gíslason | Grár/brúnneinlitt | Kópur | 7,33 |
| 7 | Goði frá Lækjarbrekku 2 | Hlynur Guðmundsson | Jarpur/rauð-einlitt | Hornfirðingur | 0 |
| A úrslit | |||||
| Sæti | Hross | Knapi | Litur | Aðildarfélag eiganda | Einkunn |
| 1 | Gefjun frá Lækjarbrekku 2 | Bjarney Jóna Unnsteinsd. | Móálóttur,mósóttur/milli... | Hornfirðingur | 8,42 |
| 2 | Sara frá Lækjarbrekku 2 | Bjarney Jóna Unnsteinsd. | Brúnn/dökk/sv.einlitt | Hornfirðingur | 8,34 |
| 3 | Glaðvör frá Hamrahóli | Kristín Ingólfsdóttir | Jarpur/rauð-einlitt | Kópur | 8,31 |
| 4 | Þruma frá Fornusöndum | Kristín Lárusdóttir | Brúnn/milli-einlitt | Kópur | 8,19 |
| 5 | Elding frá Efstu-Grund | Guðbrandur Magnússon | Rauður/milli-einlitt | Kópur | 7,77 |
| B FLOKKUR | |||||
| Forkeppni | |||||
| Sæti | Hross | Knapi | Litur | Aðildarfélag eiganda | Einkunn |
| 1 | Tromma frá Höfn | Hlynur Guðmundsson | Brúnn/milli-einlitt | Hornfirðingur | 8,47 |
| 2 | Aðgát frá Víðivöllum fremri | Kristín Lárusdóttir | Brúnn/milli-einlitt | Kópur | 8,35 |
| 3 | Svalur frá Hofi á Höfðaströnd | Kristín Ingólfsdóttir | Brúnn/milli-einlitt | Kópur | 8,3 |
| 4 | Vatnar frá Böðmóðsstöðum 2 | Bjarney Jóna Unnsteinsd. | Rauður/milli-tvístjörnót... | Hornfirðingur | 8,26 |
| 5 | Straumur frá Valþjófsstað 2 | Guðbrandur Magnússon | Brúnn/milli-einlitt | Kópur | 7,91 |
| 6 | Harka frá Holtsenda 2 | Liva Marie Hvarregaard Nielsen | Jarpur/milli-stjörnótt | Hornfirðingur | 7,37 |
| 7 | Aska frá Geirlandi | Sigurlaugur G. Gíslason | Jarpur/milli-einlitt | Kópur | 0 |
| A úrslit | |||||
| Sæti | Hross | Knapi | Litur | Aðildarfélag eiganda | Einkunn |
| 1 | Tromma frá Höfn | Hlynur Guðmundsson | Brúnn/milli-einlitt | Hornfirðingur | 8,62 |
| 2 | Aðgát frá Víðivöllum fremri | Kristín Lárusdóttir | Brúnn/milli-einlitt | Kópur | 8,48 |
| 3 | Svalur frá Hofi á Höfðaströnd | Kristín Ingólfsdóttir | Brúnn/milli-einlitt | Kópur | 8,37 |
| 4 | Vatnar frá Böðmóðsstöðum 2 | Bjarney Jóna Unnsteinsd. | Rauður/milli-tvístjörnót... | Hornfirðingur | 8,3 |
| 5 | Straumur frá Valþjófsstað 2 | Guðbrandur Magnússon | Brúnn/milli-einlitt | Kópur | 8 |
| UNGLINGAFLOKKUR | |||||
| Forkeppni | |||||
| Sæti | Knapi | Hross | Litur | Aðildarfélag knapa | Einkunn |
| 1 | Hildur Árdís Eyjólfsdóttir | Ylfa frá Ási | Brúnn/milli-einlitt | Hornfirðingur | 8,1 |
| 2 | Svanhildur Guðbrandsdóttir | Pittur frá Víðivöllum fremri | Rauður/milli-nösótt | Kópur | 8,09 |
| A úrslit | |||||
| Sæti | Knapi | Hross | Litur | Aðildarfélag knapa | Einkunn |
| 1 | Hildur Árdís Eyjólfsdóttir | Ylfa frá Ási | Brúnn/milli-einlitt | Hornfirðingur | 8,15 |
| 2 | Svanhildur Guðbrandsdóttir | Pittur frá Víðivöllum fremri | Rauður/milli-nösótt | Kópur | 8,02 |
| BARNAFLOKKUR | |||||
| Forkeppni | |||||
| Sæti | Knapi | Hross | Litur | Aðildarfélag knapa | Einkunn |
| 1 | Friðrik Snær Friðriksson | Brák frá Lækjarbrekku 2 | Brúnn/milli-einlitt | Hornfirðingur | 7,69 |
| STÖKK 300M | |||||
| Sæti | Knapi | Hross | Litur | Aðildarfélag knapa | Tími |
| 1 | Gunnar Bragi Þorsteinsson | Logi frá Brekku, Fljótsdal | Rauður/milli-stjörnótt | Hornfirðingur | 27,05 |
| 2 | Katharina Remold | Dimmbrá frá Litladal | Jarpur/dökk-einlitt | Hornfirðingur | 27,13 |
21.07.2017 18:02
Ráslistar fyrir hestaþing Kóps 2017
05.07.2017 21:17
Hestaþing Hestamannafélagsins Kóps
verður haldið 22. júlí nk. á Sólvöllum í Landbroti.
Mótið er opið í gæðingaflokkum, tölti og kappreiðum.
Keppt verður í eftirfarandi ef næg þátttaka fæst:
Polla-, barna-, unglinga- og ungmennafl. A, B og C fl. gæðinga.
Tölti T1 og T7.
100 m. flugskeiði, 150 m. skeiði, 300 m. brokki og 300 m. stökki.
Skráningargjöld í ungmenna-, A, B, C fl. og tölt er kr. 3000.- og kr. 1500.- í 100 m. skeið.
Engin skráningargjöld eru í kappreiðar, polla-, barna-, og unglingafl.
Skráningargjöld greiðist inn á reikn: 0317-26-3478 kt: 440479-0579.
Kvittun sendist á netfangið hmf.kopur@gmail.com
Skráning telst ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist.
Skráning er á heimasíðu Kóps (Skráningarvefur hægra megin á síðunni) og henni lýkur kl. 23:59 miðvikudagskvöldið 19. júli.
Ef vandamál koma upp við skráningu er hægt að hafa samband við Pálínu Pálsdóttur í síma 867-4919.
Óski einhver eftir að skrá í kappreiðar á staðnum, þarf að hafa á reiðum höndum IS númer hestsins og kennitölu knapa.
Dagskrá og ráslistar verða birt á heimasíðu Kóps www.hmfkopur.123.is eftir að skráningu lýkur.
Stjórn og mótanefnd Kóps
