27.02.2026 08:09

LOGO

Kæru félagsmenn

Á aðalfundinum í gær var samþykkt að uppfæra félagsmerki hestamannafélagsins Kóps og nota það merki sem Rúnar Þór Guðbrandsson lét hanna fyrir okkur. Rúnar ætlar að styrkja okkur um allan kostnað við hönnun þessa merkis og viljum við því færa honum innilegar þakkir fyrir.

20.02.2026 16:16

Nýtt LOGO

Kæru félagsmenn

Á síðasta aðalfundi var samþykkt að uppfæra lógó Hestamannafélagsins Kóps.

Fyrir síðasta aðalfund var búið að hafa samband við Gunnhildi Myndlist/ART sem rissaði upp hugmynd af uppfærðu lógói. Stjórnin bar lógóið undir félagsmenn hérna á Facebook hópi félagsins. Undirtektir voru misjafnar og var tillagan felld á aðalfundinum. Rúnar Þór Guðbrandsson bauðst þá til þess að fara í málið fyrir félagið. Það var samþykkt að láta hann koma með tillögu af nýju lógói.

Hérna er útgáfan af lógóinu frá Rúnari Þór. Í ljósi þess sem að ekki allir félagsmenn mæta á aðalfund þá langar okkur til þess að setja þetta hérna inn og fá að heyra ykkar álit/athugasemdir áður en það verður tekið fyrir á aðalfundinum í næstu viku?

Stjórnin

 

Gæti verið mynd af texti

04.04.2025 15:54

Firmakeppni

FIRMAKEPPNI KÓPS OG SINDRA

Sameiginleg firmakeppni hestamannafélaganna Kóps og Sindra verður haldin sumardaginn fyrsta þann 24. Apríl.
Mótið verður haldið á Syðri-Fljótum Hefst keppni stundvíslega klukkan 11:00

Keppt verður í eftirfarandi flokkum er næg þátttaka næst

-Pollaflokkur
-Barnaflokkur
-Unglingaflokkur
-Minna vanir
-Meira vanir
-Unghrossaflokki
-100m Skeið
Pollaflokkur ríður frjáls eftir getu hvers og eins

Í öðrum flokkum er riðin forkeppni þar sem 2-3 eru inni á vellinum í einu og er riðið 2 hringir hægt brokk eða tölt, snúið við og 2 hringir fráls ferð. Eftir keppni í hringnum skal sýna 1 ferð á beinni braut.
Riðin eru úrslit 5 efstu knapa eftir forkeppni, þátttakendum í öllum flokkum nema pollaflokki skal raðað í sæti.
Í pollaflokki fá allir viðurkenningu fyrir þátttöku.

Súpa, kaffi og smá veitingar verða á staðnum gegn vægu gjaldi
( Það er ekki posi á staðnum svo við ætlum að rifja upp gamla tíma með lausapening?? )
Hvetjum alla til að mæta og njóta með okkur og kíkja svo í framhaldi á skemmtanahaldið uppá Klaustri ??

 

 

Skráningar geta borist á email soffiaannahelga@gmail.com
Eða síma 8573264

Með von um að sjá sem flesta

Bestu kveðjur frá hestamannafélögunum

Kópur og Sindri

04.04.2025 15:51

Páskabingó

Páskabingó!

Páskabingó verður haldið í félagsheimilinu Tunguseli laugardaginn fyrir páska, þann 19. apríl nk. kl. 14:00.
Veglegir vinningar í boði!
Spjaldið kostar 1000 kr, enginn posi verður á staðnum.
Allir eru velkomnir. Hlökkum til að sjá ykkur!

Fjáröflunarnefnd Kóps

14.02.2025 13:52

Frumtamninganámskeið

Frumtamninganámskeið.

Helgina 22 og 23 febrúar er stefnt á að halda frumtamninganámskeið á Syðri Fljótum og mun Kristín Lárusdóttir kenna.

Tímasetning og frekari dagsetning kemur þegar skráningu er lokið, því mögulegt er að byrja á föstudaginn 21 febrúar en allt um það þegar nær dregur.

Kostar 25.000kr per mann

Síðasti skráningar dagurinn er miðvikudagurinn 19 febrúar og þurfa skráningar að berast á herdis-vs-tinna@hotmail.com

   

15.04.2024 10:57

Þakkir

Bestu þakkir til eftirtaldra fyrirtækja og einstaklinga fyrir
stuðninginn á árlegu páskabingói Hestam.félagsins Kóps 2024

Fjáröflunarnefndin.

Hótel Klaustur
Verslunin Ellingssen
Skaftárhreppur
Systrakaffi
Gvendarkjör
Skaftárskáli
Halldórskaffi Vík

Íþróttamiðstöðin Kirkjubæjarklaustri
Borgarfell kjötvinnsla
Random Klausturbúð
Fjóla Þorbergsdóttir Klaustri

Soffía Anna Helga og fjölskylda Arnardrangi

23.03.2024 19:44

Páskabingó

Páskabingó!

Páskabingó verður haldið í félagsheimilinu á Klaustri laugardaginn fyrir páska, þann 30. mars nk. kl. 14:00.
Veglegir vinningar í boði!
Spjaldið kostar 1000 kr, enginn posi verður á staðnum.
Allir eru velkomnir. Hlökkum til að sjá ykkur!

Fjáröflunarnefnd Kóps

22.03.2024 11:09

Í kvöld verður fyrirlestur sem Einar frá fóðurblöndunni og Tanja Rún dýralæknir munu halda.

 

Fyrirlestur um fóðrun hrossa, hvernig meltingarfærin eru hönnuð og hvað þarf að hafa í huga þegar hross eru fóðruð, þá sérstaklega með tilliti til hrossa sem eru í þjálfun og haldið á húsi en líka um stóðhross. É

Einnig um stoðkerfi hestsins og hvað þarf að hafa í huga þegar kemur að uppbyggingu reiðhestsins/keppnishests/kynbótahross með það að markmiði að lágmarka líkur á meiðslum

 

Mæting er í fundaraðstöðu Skaftárhrepps og hefst þetta um 19:30 

 

Hlökkum til að sjá sem flesta

fræðslunefnd :)

09.03.2024 14:16

Járninganámskeið

Góðan og blessaðan.

Í dag er járningarnámskeið hjá okkur á Fljótum og kom hann Gummi frá Baldvin og Þorvald með heilan helling af járningardóti og fleira ef fólk vill koma á laugardagsrúnt til okkar og versla vörur ??

Námskeiðið verður í dag til 19:00/20:00 og svo aftur á morgung til sikra 19:00

Endilega komið og kíkjið á okkur ??

24.07.2023 21:53

Reiðskóli

Reiðskóli Kóps

Reiðskóli Hestamannafélagsins Kóps verður haldinn dagana 31. júlí til 3. ágúst á Syðri-Fljótum.

Reiðkennari er Kristín Lárusdóttir. Reiðnámskeiðið er fyrir alla frá 6 ára aldri hvort sem þeir eru vanir eða óvanir.

Þátttökugjaldið verður 20.000 fyrir hóptíma og 24.000 fyrir einkatíma. Krakkar, 17 ára og yngri, fá frítt séu þeir félagsmenn í Kóp.

Þátttakendur þurfa að koma með taminn hest og reiðtygi.

Skráning er hjá Kristínu Lár í síma 8980825 eða á messenger Kristínar.

Ef áhugi er fyrir því að hafa fleiri námskeið í sumar er stefnan að halda annað reiðnámskeið eftir miðjan ágúst.

Nánari upplýsingar og tímasetningar verða auglýstar síðar. Hlökkum til að sjá sem flesta.

Stjórn Kóps

 

Tenglar

Flettingar í dag: 1
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 270
Gestir í gær: 9
Samtals flettingar: 393728
Samtals gestir: 53709
Tölur uppfærðar: 28.2.2026 00:19:05